Monday, June 23, 2008



Það er gaman á Íslandi í góðu veðri. Ég er búin að vera dugleg að fara í sund þrátt fyrir að vera illa stödd í sundfatamálum, ég held ég eigi 3 ljótasta sundbol á Íslandi sem betur fer eru bæði mamma og Varði í nýjum sundfötum svo við erum ekki öll eins og sundniðursetningar. Ég er líka strax orðin brún. Sólbrann á 17. júní enda gekk ég nánast frá einum enda borgarinnar til annars. Mér fannst annars lítið til hátíðarhaldanna koma ekki mikið að gera fyrir þá sem eru eldri en tvævetur. Við römbuðum þó inn á ágæta tríó-tónleika í Ráðhúsinu þar sem ung tónlistarfólk spilaði meðal annars verk eftir Jón Leifs. Ég var líka boðin í yndislegt vöfflukaffi hjá Hildi í Faxaskjólinu. Sjá meðfylgjandi myndir.
Í gær fór ég með ömmu og afa í Viðey en eins og fróðir menn vita er ég undan Skúla fógeta í móður-móður ætt svo segja má að Viðey sé mitt ættarsetur. Þar sáum við afi æðarkollu á hreiðri og hún kippti sér ekki upp við það þó við gengjum rétt framhjá henni.

1 comment:

Eyja said...

Áttu þriðja ljótasta sundbol á Íslandi? Þá hlýtur að liggja beint við að spyrja: hverjar eiga þann ljótasta og næstljótasta?