Monday, April 09, 2007



Ungfrú Hildur hefur verið í heimsókn hjá mér síðan á miðvikudaginn og hún fær hér með verðlaun fyrir að vera menningarlegasti gesturinn minn hingað til. Við fórum á söfn á hverjum einasta degi og eyddum líklega ekki nema svona samtals 4 klst í búðum og allt var það mjög markvisst. Við fórum á 4 söfn og kannski eitt enn á morgunn. Fyrst fórum við á The Museum of Arts and Crafts, þar var sýning á brjáluðum prjónaskap og hekli og eitt verk eftir íslenska listakonu, Hildi Bjarnadóttur, það var heklaður dúkur með hauskúpum rosalega flottur. Á föstudeginum lá leiðin á MoMa eða nútímalistasafn borgarinnar, þar fundum við reyndar ekkert eftir Íslending en skemmtum okkur afar vel. Um kvöldið var svo haldið á veitingastaðinn Sushi Samba, Cosmopolitan kvöld ferðarinnar, við báðar rosalega fínar og sætar og drukkum fína drykki og fengum okkur humar sushi. Laugardeginum eyddum við í Williamsburg þar sem allir hipsterarnir halda til, við fórum í Beacon's closet sem er risa-stór búð með notuð föt. Hildur keypti voðalega fínan kjól og jakka og mér tókst að kaupa skó og belti sem reyndar var bæði nýtt! Um kvöldið fórum við svo í Red Hook hverfið í Brooklyn á tónleika hjá hljómsveitinni sem Mike hafði verið að túra með Catfish Haven, ég var efst á gestalistanum og við fórum í græna herbergið á eftir að hitta strákana úr hljómsveitinni.

Á sunnudaginn fórum við á PS1 sem er samtímalistasafn og þar var magnað listaverk eftir íslensku listakonuna Katrínu Sigurðardóttur. Það voru tveir stigar í herbergi og maður þurfti að klifra upp og stinga hausnum upp um lítið gat og þá var maður kominn inn í íslenskt landslag, alveg stórkostlegt. Hér má sjá Quin vinkonu mína komna til Íslands, rosa ánægð. Á eftir fórum við svo út að borða á voða fínan grískan veitingastað. Í dag fórum við í Guggenheim og fórum svo í Dumbo hverfið í Brooklyn að borða bestu pítsu í New York.
Sem sagt heilt á litið erum við búnar að þramma um allt, vera gífurlega menningarlega og skemmta okkur vel.
Ég var svo heppin að fá með Hildi tvö páskaegg, málshátturinn frá mömmu var "Betri er bið en bráðræði" og frá ömmu og afa "Hlynntu að frækorni viðkvæmninnar og mun það bera blómlega ávexti góðgerðarseminnar". Ef einhver vill segja mér hvernig best sé að heimfæra þessi ráð upp á mitt daglega líf þá er það vel þegið. Ég fékk líka sendingu frá Láru sem var að koma frá Kína, innsiglisstaut með nafninu mínu á kínversku og voðalega fín snyrtiveski. Ég fékk líka Sölku Völku frá mömmu svo þetta voru svona eins og litlu jólin hjá mér.

2 comments:

Anonymous said...

Töff!!!

dax said...

"Hlynntu að frækorni viðkvæmninnar og mun það bera blómlega ávexti góðgerðarseminnar" ... held að maður þyrfti að droppa ævibirgðir af LSD til að finna heila brú í þessu.

gaman að heyra af menningunni - einhverntíman á næstu misserum verður nýja jórvík sótt heim, svo mikið er víst :-)

saknaðarkveðjur úr 101